[slettuhr52] Gjörðabók hreppsnefndar Sléttuhrepps 1948–1952
Fundargerðabók hreppsnefndar Sléttuhrepps, hafin í október 1948. Síðasti fundur hreppsnefndar sem í hana er skráður fór fram 5. október 1952, að heimili Sölva Betúelssonar, oddvita, á Hesteyri.
Síðasta færsla í bókinni er hins vegar frá fundi Sölva og Jóhanns Gunnars Ólafssonar, sýslumanns N-Ísafjarðarsýslu. Tilgangur fundarins var að skila gögnum og eignum hreppsins til varðveislu, þar sem allir íbúar hans voru fluttir á brott.
Sá fundur er síðasta opinbera gjörð embættismanns Sléttuhrepps, en engin lög voru þá til um sameiningu hreppa eða afnám þeirra. Sléttuhreppur var sameinaður Ísafjarðarkaupstað með lögum frá Alþingi í desember 1995.